Okkar Þjónusta.

Vefsíðugerð

Við setjum upp vefsíður fyrir þinn rekstur og tengjum hann við mæliþjóna og birtingamiðla. Það gerum við til þess að mæla markaðsherferðir og skilgreina markhópinn þinn. Með því getum við skilgreint markhópa og sent auglýsingar beint á þá sem sýna vörunni eða þjónustunni áhuga.
Vefsíður eru grundvöllur stafrænnar markaðssetningar þar sem við keyrum umferð á vefsíðuna. Þannig náum við fram árangursmælingum og skilgreinum markhópinn þinn.

Auglýsingar

Við framleiðum markvissar og hnitmiðaðar auglýsingar sem vekja strax áhuga fólks á vörunni eða vörumerkinu. Í umhverfi samfélagsmiðla eru styttri auglýsingar áhrifaríkastar þar sem skilaboðin koma fram hnitmiðaðann og upplýsandi hátt.

Birtingarþjónusta

Við förum í markvissar markaðsherferðir á samfélagsmiðlum eftir ykkar þörfum. Okkar helstu birtingaleiðir eru á Facebook, Instagram, Google, Youtube og X.

Árangursmælingar

Við mælum árangur herferðarinnar og út frá því mótum við áframhaldandi stefnu í samvinnu við þig. Við mælum umferð á vefsíðunni þinni, skilgreinum markhópa og beinum auglýsingum á þá sem sýna vörunni þinni áhuga.

SEO/SEM - Leitarvélarbestun

Við tökum vefsíðuna þína og sjáum til þess að hún skili sem bestum árangri í leitarvél Google. Það er ekki sjálfgefið að vera ofarlega á lista leitarvéla og því þarf að gera viðeigandi vinnu. Það er margt sem gerir það að verkum að síðan þín skorar hærra og getum við hjálpað með setningu leitarorða, hagræða innri og ytri bakhlekki, Lagfært skráningu vefslóða, uppfært útlit leitarniðurstöðunnar á þinni síðu og fleira sem viðkemur leitarvélabestun og markaðsetningu á Google.